27apríl
Úúúúúhhh væri ekki huggulegt að eiga heima í þessu litla koti?
Þarna ætla ég að búa. Getur maður nokkuð farið í fýlu eða verið leiður inni í svona litlu bleiku húsi með sólskin á þakinu? Gæti maður einbeitt sér endalaust að próflestrinum þarna inni og alltaf verið glaður, sungið yfir glósurnar, leirað efnafræðiformúlur og vatnslitað amínósýrur? Kannski ættu stúdentagarðarnir að vera meira í þessum stíl, ég ætla að búa þar næsta ár. Ja ég mála þá bara veggina utan um mína íbúð svona bleika, svo ætla ég hafa fjólubláar gardínur í svefnherberginu, múmínálfa skálar, -könnur, -glös og -dunka í eldhúsinu, fílana mína á rúminu, myndir á veggjum og froskana í fínu búri. Þannig að, ef þið sjáið rosalega bleikan útvegg á einhverri af stúdentaíbúðunum, alveg sama hvaða hæð það er, þá er það mitt heimili. En ekki fyrr en eftir sumarið
Núna ætlar snorkstelpan að halda áfram að læra og narta í cherry-tómata.
08apríl
Í morgun var ég í lífefnafræðitíma og var viðfangsefnið að þessu sinni næring; vítamín og steinefni. Sat ég þann tíma til enda og bætti miklu við í minn litla viskubrunn. Mig langaði að þjóta beint út í Krónu og troða í körfu öllum þeim vítamínum og steinefnum sem mér fannst mig vanta. Svo datt mér í hug að fara í sólarlandaferð og ná mér í svolítið D-vítamín í húðina, sem mann hefur skort núna í skammdeginu. En fyrst það er nú að vora, þá ákvað ég að flytja bara upp á bókhlöðu og geyma sólarlandaferðina. Þar sat ég og lærði efnafræði í allan dag, en tók mér þó pásu klukkan hálf 7 til að ná í Krónuna og kaupa inn. Við í Logalandinu vorum farin að skeina með Domino's servéttum... svo það já, vantaði eitt og annað. Nú skulum við fara stuttlega yfir strimilinn.
*Cheerios - uppfullt af vítamínum og steinefnum, próteini og kolvetnum. Ekkert smá hollur pakki þar.
*Jarðarber - góð út í Cheeriosið á morgnana, *léttmjólk - út á morgunmatinn + kalk.
*Þorskalýsi - A,D og E-vítamín m.a
*Krukka af járntöflum með C-vítamíni - ég er pottþétt með of lágan járnstyrk, en nú ætti ekki að líða yfir mig út í bakaríi, í klefanum útí sundlaug eða inni á baði heima.
*Gul paprika og *baby-gulrætur - karóten, A-vítamín
*Sardínur í sólblómaolíu - þar fær maður kalk úr sardínubeinunum
*Blóðmör og lifrarpylsa - hversu hollt! og gott. Svo bara um að gera að drekka t.d appelsínusafa með því C-vítamínið eykur járn upptökuna, en slátur er nú járnríkt mjög. Ekki drekka mjólk með krakkar, ekkert kalk með slátrinu!
*Lifrarkæfa *brauð
*Húsavíkur fiskibollur - að norðan
Svo var ég nýbúin að kaupa furuhnetur og grænt pesto...
Nú og svo var það toilettpappírinn. Eins þunnur, vesældarlegur og ódýr og fannst... Örugglega ... er ekki búin að tjékka.
Já, þetta eru semsagt þau allra öðruvísust (jú það er orð - núna) innkaup sem ég hef átt, mér fannst meira að segja konan fyrir aftan mig í röðinni á kassanum horfa á mig og hugsa: "mikið borðar þú hollan og góðan mat unga stúlka".
Núna hinsvegar sit ég uppí rúmi, blogga og borða Twister ís. Á morgun ætla ég aftur að búa á bókhlöðunni, spurning um að fara að taka pottablóm með sér, púða, lampa og myndir til að gera þetta svolítið heimilislegra... svona þegar maður er meira þarna en heima hjá sér! Já, ég verð líka að fá póstkassa og dyrabjöllu á borðið mitt =)
14mars
Aaaah hvað það var gott að fá sér bragðaref í dag... eins og alltaf. Sól og blíða í höfuðborginni, lengstur hluti dagsins fór þó í að klára skýrslu í lífefnafræði og mikið var nú lífið ljúft þegar búið var að ýta á "send"!.Og fyrst það er nú kominn föstudagur, þá held ég að það sé kominn tími til að setja nokkur orð um seinustu helgi :)
Mmm strax á fimmtudeginum fyrir rúmri viku skellti ég mér á Sólon með Júlíu, Selmu og Sigurborgu. Þar voru Dalton bræður (og Sigurborg) að skemmta fólki fram á næsta skóladag... eða svona, eitthvað frameftir allavega híhí. Á föstudagskvöldið fylltist Logaland 17 af stelpum og það var bara næstum ooof gaman! :) Við tókum nú í spil, ójá typpaspilin mín! og spiluðum laumu og morðingja langt fram eftir nóttu og vissum ekkert hvað tímanum leið, enda skipti það engu, langt síðan við höfðum spilað þessa leiki og ekki leiddist okkur! Það þarf náttúrulega ekkert að spyrja að því hvort ég og Júlía höfum unnið laumuna... auðvitað gerðum við það hah ;) Á laugardaginn var sko kominn 8.mars sem var löngu búið að taka frá fyrir Árshátíð FLOG sem haldin var á Hótel Sögu. Ji við vorum öll svo fín að við þurftum nánast að kynna okkur hvort fyrir öðru, svo illa til höfð erum við alltaf í skólanum... :P Nei nei ég segi það nú ekki. En þetta var agalegt fínt og lekkert og aumingja nautið, pabbi allra kálfanna var borðaður í aðalrétt ;(
Segjum það nóg í bili. Nú er komin önnur helgi og ég held bara að ég ætli að fara í páskafrí hér og nú, skella mér norður á Sauðárkrók með Hákoni Frosta á morgun, fljúga söðör aftur á þriðjudag og fara heim til Hafnar :) Alveg kominn tími á að kíkja á Krókinn og hitta fólkið og gá hvort þau samþykki kvonfangið hans Frosta síns...
Jæjah, mér er víst ekki til setunnar boðið, verð að fara að þrífa froskabúrið og gera froskana fína og sæta og hreina á bak við eyrun fyrir páska því afi þeirra verður sjálfsagt að passa þá. Þeim líður ekkert vel í bíl...
Góða helgi - Sara Eik Löklana.

01mars
Aloh, salut. Jæja hvað segiði þá? Ég er bara ennþá kvefi kvefi, skil ekki hvað þessi flensa hangir lengi í mér. Fór nú á vakt nokkra sem kennd er við lækna í gærkvöldi og borgaði þar 2200 kr fyrir að láta segja mér að ég væri með flensu...ó?! en það var nú svosem eins gott að það var ekki orðið neitt meira en flensa, þá hefði verðið sennilega rokið upp! En hvað um það, svo nú er ég bara heima að láta mér batna, en ekki á leið á Nasa í kvöld eins og margir. Nú er líka bara ein vika í árshátíð FLOG (félag lífeinda- og geilsafræðinema) og þá ætlum við Flog hjúin ásamt öðrum Flogurum sko að skemmta af okkur nokkur skópör eða svo. ...Ég held ég hafi meira að segja keypt mér kjól fyrir árshátíðina í dag, en er ekki alveg viss, ég er með óráði og er fátækur námsmaður í þokkabót... ég held samt að ég hafi kannski keypt mér einn kjól....... :P Má það?
Æj mig langar til útlanda. Svolítið skemmtilegt hérna sem ég fann á síðunni hans Sigga Stapastáls fyrir löngu, þar sem maður hakar við þau lönd sem maður hefur komið til og sér hversu mörg prósent af heiminum maður á að hafa séð og fær mynd að því að auki. Sjálf hef ég komið til 12 landa sem gera 5% af heiminum og lítur mitt kort svona út:
25febrúar
Ah þá er frumulíffræðiprófið búið, einkunnin komin, ný vika komin og allir sáttir. Tók því bara frekar rólegar eftir þetta próf enda búin að lesa og lesa fyrir það. Var með litlu sis og stóru sis á fimmtudaginn, fórum í sund og höfðum gaman :) Síðan um kvöldið fór ég með Selmu og Júlíu niðr'í bæ.
Svo kom helgi, ekki bogi haha, og ég, Sigrún Inga, Steini og Hákon Frosti fórum til Hafnar!!! :D Mamma var búin að baka naan þegar við komum mmmmmm......
DJ. Páll Óskar var nú í Sindrabæ og eflaust margir á leið þangað þetta kvöld, en við Hákon Frosti létum okkur nægja að fara bara á rúntinn ásamt Pálma Geir og Jóhönnu :) Enda druuullu þreytt....!
Á laugardaginn kyngdi snjónum niður á Höfn, sjálfsagt fyrir einhver áhrif frá Norðlendingnum! Við fórum í heimsókn til Heiðar minnar og fjölsk og svo löbbuðum við Hákon Frosti, mamma, Sigrúin Inga og Mjöll í snjónum um allan Hrossabithaga, langt síðan ég hef komið þangað! Síðan fór veðrið að verða enn norðlenskara þarna fyrir austan og kom bara hríðarbylur, þannig að við höfðum það bara huggulegt heima. Mamma var svo með kjöt og karrý í matinn sem einhver lítil stelpa hafði óskað sér :P Maður er nú litla stelpan hennar ;) Um kvöldið horfðum við á undankeppnina fyrir Eurovision og var mér frekar mikið saman um valið á laginu í ár... Hefði samt frekar viljað sjá lagið hans Barða áfram ef það hefði verið sungið með aaaaaðeinis meiri krafti. Lagið sem vann er svosem alveg týpískt Eurovision lag. Af hverju sendum við ekki bara Spaugstofumennina með eurovision lagið sitt "....þetta' er alveg týpískt Eurovision lag...." Nú allavega, svo kom hlé svo landsmenn gætu sprent upp símkerfið og kosið. Þá skottuðumst við Frosti uppí Skipholt, eða nei, uppá Silfurbraut til Jóhönnu, Finns og Karenar Huldu og áttum með þeim ægilega góða kvöldstund, alveg huggulegheit út í eitt þarna á Höfn =)
Á sunnudaginn var brjáluð blíða, sólskin, logn og snjór. Við löbbuðum til Heiðar og fjölsk, alltaf gaman að hitta alla þar, síðan var kominn matur heima (maður kemur náttúrulega alveg 4 kg þyngri til baka eftir svona ferð!).
Svo fengum við Frosti afabíl og rúntuðum upp í Lón og upp í bústað :) Og þegar við komum niðureftir aftur var kominn tími á brottför aftur :/ Eftir 6 klst akstur undir stjörnunum og í allt að -18°C frosti vorum við komen söðör til Reykjavíkör. Og nú ligg ég hér bara lasi lasi... horfi á Grey's Anatomy og hef lítið annað að gera.
Það var alveg kominn tími á að kíkja til Hafnar, það var æði flæði og ég hlakka til að koma næst ;) Svo verðum við nú að fara að komast á Sauðárkrók og hitta fólkið þar. Nú er bara verið að hugsa hugsa hugsa hvernig sumarið verður... jah það verður fínt vonandi.
Taaaakk fyrir helgina allir sem ég hitti og var með :*
Hneerrrrrr - Sara Eik.
11febrúar
"Ég er sko búinn að vera blautur í tærnar í viku!"...setning dagsins, sögð í slabbinu í Reykjavík. -EÁM
Jú eins og fólk hefur væntanlega tekið eftir hefur maður þurft að moka jeppann sinn út úr skafli á morgnanna og svo bara taka þetta á ferðinni til að drífa í skólann. Þá er nú gott að vera á svona jeppa, það þarf nú engin vetrardekk undir svona kvekendeh... (nissan almera 1.6, árg. "99, 2 dyra fólksbíll á álfelgum og með spoiler = ekki jeppi) Þessi á myndinni er reyndar ekki alveg eins og minn. En mjööög svipaður!Núna eru margir dagar búnir að koma og nætur líka síðan ég bloggaði síðast, þar á meðal bolludagur, sprengidagur og öskudagur. Ég er nú samt ennþá að klæða mig í allskonar búninga.... og Júlía er enn að baka bollur. Einhver sprunginn? Já, botnlanginn á frænku minni!
Síðan kom helgi... æj Helgi, þið munið... fréttakallinn á rúv:
En um helgina þá var nú lært og sofið og þetta venjulega, nema svo fór ég nú í bíó á laugardagskvöldið og í Borgarleikhúsið á sunnudaginn. Byrjum á bíóinu. Fór með Rósu, Guðjóni, Júlíu og Halldóru og sáum við myndina Untraceable. Maður varð nú ekki fyrir vonbrigðum þar, en maður varð sko fyrir viðbjóði! Þetta er bara mynd sem mann langar ekki að þurfa að hafa augun á aftur. Viðurstyggd í hámarki. Mjög spennandi og góð mynd samt, en vá hvað við búum í biluðum heimi miðað við hverslags viðbjóð fólki dettur orðið í hug að skrifa... vonandi ekki framkvæma!!! Þá var nú gott að eiga góða fíla og einn kærasta til að kúra hjá um nóttina. Leikhúsferðin var ekki eins mikill hryllingur, langt frá því. Ég var ekki einu sinni neitt svo hrædd þegar Gosi og félagar voru í maganum á hvalnum. Já, ég fór semsagt að sjá Gosa með pabba, Sigrúnu Ingu og Guðrúnu Steinunni. Það var rosalega skemmtilegt eða eins og oft var kveðið í Hafnarskóla: "Það - var - gaman".
Nú styttist í frumufræðipróf hjá mér þannig að ég þarf eiginlega að fara að hætta þessu bulli, vika til stefnu og nóg af lesefni framundan. 
27janúar

Gleymdi að segja ykkur að fara í leikhús! Það er bara svo frábært alltaf. Bara fullt af fólki á sviðinu fyrir framan þig að setja sig í ótrúlegustu hlutverk og gervi, bara fyrir þig - áhorfandann! Alltaf langar mann nú samt að vera ein af þeim á sviðinu, það er svooo gaman. Ég og Sigrún Inga fengum miða á Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu í jólagjöf og tókum pilta okkar með á sýningu 17.janúar s.l. Þetta er auðvitað sýning sem við urðum að sjá og fórum sko sátt heim. Það er náttúrulega frábær tónlist í þessari sýningu og sagan alltaf jafn mögnuð. Ég er ekki á prósentum hjá Borgarleikhúsinu eða Þjóðleikhúsinu eða neitt svoleiðis... en í alvöru, leikhús er málið! Kannski eftir 30 ár verður maður fín frú sem fer í pelsinum sínum í leikhús og sér litlu fátæku námsmennina sem eiga engann pels en langaði í leikhús og borða því núðlur næsta mánuðinn, og fína frúin hugsar: "Fuss, svona var ég...." En nei, mig langar ekkert í pels.
Boðskapur þessarar færlsu er: Verndum íslenska refinn, námsmenn í leikhús!
25janúar
Unemployed in summertime
I've only just turned 21, I'll be ok
Unemployed in summertime
Don't need money 'cause we're young
I'll just stay awake till the morning
With make up all over my face
Blekuð, blelluð, blessuð, berrössuð.
Gamla mætt á ný og nú í nýjum náttbuxum (sem ég á eeeekkert í) og orðin eldri en nokkru sinni fyrr; jebb, tuttugu OG eins! Púff það er nú ekkert lítið, varla þó meira en elstu menn muna, enda eru þeir jafnvel enn eldri og sennilega hættir að muna svona lagað.
Í dag er bóndadagur og kallinn er frammi að þrífa baðherbergið. Gott að hafa svona bóndadag hmmm ;) Ég labbaði í skólann í morgun, baksaðist í gegnum hríðiina og reyndi að missa ekki niður um mig snjóbuxurnar sem ég á lítið meira í en þessum náttbuxum... og komst heil á húfi uppí VR1 þar sem biðu verklegar æfingar í efnafræði. Já, ég er semsagt komin á aðra önn í lífeindafræðinni og farin að klæðast sloppum og hlífðargleraugum á föstudögum. Af kallinum er það að segja að hann klæðist hjúkkubúning uppá spítala alla daga þegar ég sé ekki til og umgengst kvenkynið meira en hættulaust getur talist... svei mér ef hann er ekki farinn að tala á innsoginu. Svo er hann víst að fara að kippa í ryksuguna núna!
Það sem af er árinu er bara þokkalegt myndi ég segja, ein vísindaferð búin, fór aðeins í bæinn með Birnu helgina þar áður og á morgun held ég að einhverjar hornfirskar ætli að kíkja í heimsókn til Selmu. Júlía búin að vera með svakalegt stelpupartý heima sem varð stærra eftir sem leið á. Við kæró fórum í mat til Rósu og Guðjóns rétt eftir áramót og svo í mat til Sigrúnar Ingu og Steina í gær, svo jah maður er ekki illa haldinn. Jóhanna og co eru líka búin að vera í bænum, við heimilisfólkið í greninu að Logalandi 17 búin að fylgjast með handboltanum og já, svo bara skóli.
Þangað til næst.... Heiparalla!
01janúar
Gleðilegt nýtt ár, takk fyrir það sem nú er liðið.
Viltu koma með mér út að leita að fallhlífum???
22desember
Jahá, ég er komin heim til Hafnar og hér er gott að vera! Síðan ég kom erum við mamma og Pálmi Geir búin að vera að baka og vera úti að labba með hundana. Svo er ég búin að vera að pakka inn jólagjöfum og skrifa á kort... en núna er ég svona eiginlega bara að bíða eftir að Benni, Sigrún Inga og Steini komi að sunnan :)
Skólinn kláraðist að lokum með svakalegu efnafræðiprófi þann 19.desember, en hvernig sem það fór er ég búin að fá þær fréttir að ég komst í gegn og get haldið áfram að læra eins og brjálæðingur eftir áramót, vúhúúú!!! ;) ...Áramót segiði, hvar skyldi maður halda þau þetta árið? Í fyrra var þeim fagnað í Finnlandi... svo er manni nú boðið á Sauðárkrók núna, en kannski maður verði bara rólegur heima á Höfn, það kemur í ljós. Jæja, þá er bara að halda áfram að bíða eftir fólkinu og jólunum, sakna kæró síns pínu og gera eitthvað jólalegt.
Ég óska ykkur öllum GLEÐILEGRA JÓLA og áramóta og farsældar á komandi ári, þakka allt gamalt og gott!